14.4.2009 | 17:20
Lausn á atvinnuleysinu?
Nú stefnir í 10% atvinnuleysi á Íslandi með tilheyrandi útgjöldum hjá ríkissjóði. Ekkert virðist í augsýn hjá stjórnvöldum í atvinnumálum. Fólk er jafnvel farið að leita fyrir sér erlendis með vinnu. Hvaða vit er í því að Íslendingar rífi sig upp með rótum og flytji til útlanda þegar næg vinna er á Íslandi sem unnin er af útlendingum? Er ekki kominn tími til að Íslendingar þakki þessu ágæta fólki fyrir vel unnin störf en að nú sé kominn tími til að standa upp fyrir atvinnulausum Íslendingum? Væri ekki nær að benda útlendingunum á þessi störf sem bjóðast til dæmis í Kanada, Noregi og Svíþjóð? Eins og staðan er í dag eigum við nóg með okkur.
Eða er þetta kannski mál sem má ekki ræða á tímum pólitísks rétttrúnaðar?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2009 | 19:32
hvað með kosningaárin 2003 og 2007?
Nú þarf að fara alla leið og birta yfirlit styrkja fyrirtækjanna til stjórnmálaflokkanna öll síðustu ár og sérstaklega á kosningaárum eins og til dæmis 2003 og 2007.
Ég held að þá komi margt athyglisvert í ljós þegar upplýst er hvaða fyrirtæki styrktu hvað mikið í aðdraganda kosninga og ef skoðað yrði hvort viðkomandi stjórnmálaflokkur beitti sér á einhvern hátt í þágu fyrirtækjanna eftir kosningar.
Það segir sig nú eiginlega sjálft að fyrirtækin eru ekki að styrkja áhrifalausann stjórnarandstöðuflokk nema þá á kosningaári.
Samfylking opnar bókhaldið 2006 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2009 | 10:44
Allar upplýsingar upp á borðið
Nú þegar sjálfstæðisflokkurinn hefur birt þessar upplýsingar liggur beinast við að hinir flokkarnir geri það sama. Ef ekki þá bendir það til að þeir hafi líka eitthvað að fela.
Það er augljóst að þessi fyrirtæki eru ekki að borga þessar fjárhæðir af einskærri góðmennsku, þau hljóta að vilja eitthvað í staðinn. Það er til dæmis augljóst að FL Group ætlaðist í staðinn að fá stuðning við að ná yfirráðum yfir Hitaveitu Suðurnesja og í framhaldinu að eignast REI og komast til áhrifa í almenningsfélaginu Orkuveitu Reykjavíkur. Í því sambandi er staða Guðlaugs Þórs vandræðaleg því hann var jú formaður stjórnar Orkuveitunnar.
Hvað hin félögin á listanum hafi ætlast að fá í staðinn fyrir fjárstuðninginn væri gaman að vita.
Landsbankinn veitti 2 styrki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.4.2008 | 23:24
ný fjölmiðlalög?
hvað myndi gerast í pólitíkinni ef Baugur tæki upp á því að selja fjölmiðlahlutann einhverjum aðilum tengdum til dæmis sjálfstæðisflokknum ?
ætli andstæðingar gamla fjölmiðlafrumvarpsins sæu ástæðu til að setja lög á eignarhald fjölmiðla vegna þess að sjallarnir réðu þá yfir flestum fjölmiðlum?
eða myndi það skipta nokkru máli því að eigendur fjölmiðla hafa jú engin áhrif á efni þeirra.
var það ekki megin röksemd andstæðinga laganna á sínum tíma?
Baugur selur fjölmiðla- og fjármálafélög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2008 | 21:59
það sem koma skal
er það ekki bara tímaspursmál hvenær þetta verður viðurkennt í samfélaginu?
í umburðarlyndu samfélagi þar sem allar tilfinningar og öll ást er viðurkennd verður þróunin á endanum til þess að ástir og tilfinningar milli foreldra og barna verður líka viðurkennd.
eða hvað?
Feðgin sem eiga barn saman biðja um skilning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2008 | 23:03
þarft eftirlit
nú reynir á að fylgjast vel með fyrirtækjunum hvort þau laumist ekki til að hækka álagninguna í skjóli gengishruns og hvort þau hækki líka verð á gömlum lagerum sem þau keyptu inn fyrir gengishrun.
ég minni á að skattalækkun á matvæli fyrir ári síðan er öll gengin til baka og gott betur
Samkeppniseftirlitið fylgist með umræðu um verðhækkanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2008 | 22:14
vafasamt
mér finnst þessar aðgerðir bílstjóranna hálf vafasamar því að þær beinast gegn röngum aðila, það er saklausu fólki sem átti þarna leið um.
ég myndi styðja aðgerðir sem beindust að bensínstöðvunum, til dæmis að loka aðgengi að þeim, eða aðgerðir sem beindust að alþingi til að þrýsta á um að ríkið lækki álögur á bensín.
Bílstjórar hætta aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 23:56
foreldrahlutverk
sá brot úr heimildarþætti í sjónvarpinu áðan um einhleypar konur sem fara í tæknifrjóvgun og ala síðan börnin upp einar.
fór að velta því fyrir mér hvort þetta væri þróunin í framtíðinni, það er einhleypar konur eignuðust börn í tæknifrjóvgun og einhleypir karlar eignuðust börn með því að ættleiða.
þá væri sú staða komin upp að börn þyrftu bara eitt foreldri, í öðru tilvikinu þyrfti barnið ekki föður og í hinu tilvikinu þyrfti það ekki móður.
væri það ekki svolítið skrítin staða?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 21:43
íslenska aðferðin
íslenskir bankar hafa notað íslensku aðferðina undanfarið, það er spila djarft og taka áhættur og uppskera ríkulega þegar vel hefur gengið, en þegar niðursveifla kemur er það einhver annar sem borgar eins og til dæmis almenningur með hærri vöxtum
Þurfa ekki að gjalda óhófs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.3.2008 | 20:24
gengissveiflur
það er eitt sem ég skil ekki varðandi gengissveiflur krónunnar. ég hef séð þegar gengið fellur þá hækkar verð á innfluttum vörum í samræmi við það, ok ég skil það.
en af hverju virkar það ekki í hina áttina, það er ef gengið styrkist, af hverju lækka þá ekki sömu vörur? og af hverju hækka hlutirnir um leið og gengið fellur? ég geri ráð fyrir að fyrirtækin eigi góðann lager af vörur sem þeir keyptu inn þegar gengið var hátt, af hverju eru þær vörur líka hækkaðar? getur verið að fyrirtækin laumist til að hækka álagninguna þegar gengið styrkist og komist upp með það vegna þess að engin segir neitt. ef svo er er samkeppnin ekki að virka hér á landi.
er einhver þarna úti sem getur svarað mér?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ólafur Jóhannsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar